Heimasíða Bjöggu beib

Velkomin(n) á Bjöggu síðuna ;)

03.01.2009 22:50:16 / bjorg

Gleðilegt nýtt ár :D

Já sæll... Já fínt.. Eigum við að ræða þetta eitthvað?
Það er komið nýtt ár og árið 2008 kemur aldrei aftur. En þetta ár hefur aldeilis verið viðburðarríkt fyrir mig. Aðallega að því leytinu til að ég trúlofaðist manninum í lífi mínu, já og svo hélt ég svo eftir minnilega upp á afmæli aldarinnar 19. mars á árinu. Veislustjórarnir fóru á kostum og fleiri skemmtiatriði voru einnig alveg frábær.

Jólin hafa verið alveg æðisleg hjá mér. Við Erlingur héldum okkar fyrstu jól saman á Dvergó og var það alveg æðislegt. Við buðum pabba í mat, svo við vorum þrjú og höfðum það alveg voða næs. Enda ekki annað hægt. Við sáum um að elda og pabbi mætti með tobleronísinn sinn :D Æðislegt aðfangadagskvöld. Fékk æðislegaar gjafir. og falleg jólakort. Takk fyrir mig/okkur.
Á jóladag var náttfatadagur já eða allavega til 18 eða þá fór maður að græja sig fyrir matarboðið hjá múttu, mættum þar um sjö og borðuðum hangikjöt og meððí með múttu,Sæla, Systu og Filipe. Horfðum svo saman á Mýrina og borðuðum best fromage sem ég hef bragðað lengi. a la Mútta. :D Stendur alltaf fyrir sínu. :D
Á annan í jólum var Fjölskylduboðið annan í jólum.. :D Það var að þessu sinni haldið hjá ömu og afa. Komu allir með eitthvað góðgæti á kaffihlaðborð og var þar haldin mjög ljúf fjölskyldustund. Það var spilað á þremur ef ekki fjórum hornum og við söngelsku héldum okkur við það að syngja já og amma var auðvitað við hljómborðið og Sæli með gítarinn, en ekki hvað, svo voru lögin sungið eftir Baggalút, og önnur lög svo þetta var mjög skemmtilegt.
Milli jóla og nýárs hafði ég það svo voðalega gott bara, slakaði vel á, en svo 30. skelltum við okkur norður til Akureyrar til að vera þar á gamlárs. já og eitthvað áfram. :D
Sú ferð er líka búin að vera mjög skemmtileg. Við erum búin að fara í þó nokkur matarboð, spila, djamma smá., fara í bíó og já hafa það næs. :D Fórum að sjá Yes man með Birgittu, Björgu og Palla í gær og já ég verð að segja að það er bara hin besta mynd. Get alveg mælt með henni, eindregið fyrir þá sem vilja lifa lífinu. Þið skilið mig þegar þið sjáið myndina :D

Á Gamlárskvöld vorum við í mat hjá tengdó, horfðum á fréttaannálinn og skaupið og stungum svo af. Ferðinni var heitið upp í Kjarnaskóg. Erlingur hafði keypt Glowsitcks í Bónus til að sjá eitthvað í myrkrinu þar. :D Við fengum okkur smá göngutúr og fundum okkur svo góðan og fallegan stað inn á milli trjánna, og settum upp trúlofunarhringana sem við keyptum okkur milli jóla og nýárs. Algjör snilld. Mér leið á tímabili eins og í bíómynd, þetta var svo svaðalega rómó. Alveg logn, svona -3 gráður og svo kingdi einu og einu snjókorni niður. Getur þetta verið eitthvað rómantískara??? Við erum hamingjusamasta parið hérna fyrir norðan þessa stundina myndi ég segja :D Kyssumst næstum á öllum hjartarauðuljósunum í bænum og spáum í fallega hjartanu upp í hlíðinni. Ástin er dásamleg.

Í dag fór ég á Bláu könnuna og hitti þar Veigu æskuvinkonu. það var náttúrulega bara æðislegt. Við höfum ekki hisst lengi og spjallað svona svo þetta var voða næs bara. Gaman að rifja upp gamla tíma. .

Jæja, best að hafa þetta ekki mikið lengra í bili. Ætla að fara að láta ofan í tösku fyrir ferðalagið suður á morgun. :D
Bestu kveðjur að norðan.. Bjögga hringtrúlofaða :D

» 3 hafa sagt sína skoðun

14.09.2008 18:38:43 / bjorg

KLUKK!!!!

KLUKK !!

 

Fjögur störf sem ég hef unnið við um ævina:

1. Myndbandaleigan Arnarbakka

2. Vísir hf í Grindavík, sem er auðvitað flottasti vinnustaðurinn ;)

3. Kattholt

4. Leikskólar, sem eru alveg fjórir talsins.

Fjórir staðir sem ég hef búið á um ævina:

1. Eyjabakki 18

2. Laugalækur 9

3. Jörfabakki 10

4. Dvergabakki 6

Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:

1. Truth about Cats and dogs

2. Pairets of the Carabian, allar myndirnar

3. My best Friend's wedding

4. Die Hard 4

Fjórir sjónvarpsþættir í uppáhaldi:

1. Friends

2. Lost

3. Boston Legal

4. Sex and the city

Fjórar bækur sem ég hef lesið oftar en einu sinni:

1. Konan sem gekk á hurðir

2. Bækurnar eftir Þorgrím Þráinnsson sem komu út þegar ég var unglingur

3.

4.

Matur sem er í uppáhaldi:

1. Pizza

2. Lambalæri og meððí

3. Lasange a'la Birgitta

4. Hamborgarhryggur og meððí.

Fjórar síður sem ég heimsæki daglega (fyrir utan bloggsíður):

1. facebook.com

2. hotmail.com

3. baggalutur.is

4. mbl.is og visir.is

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

1. Costa del sol

2. Creete

3. Kaupmannahöfn

4. Akureyri

Fjórir staðir sem ég myndi vilja vera á núna:

1. Á Þingvöllum í rólegheitunum

2. Á Akureyri

3. Í sólarlöndum í 30 stiga hita

4. Á flottum veitingastað

Fjórir bloggarar sem ég klukka:

1. Lafan

2. Erla Ósk

3. Margrét Kristín

4. Jennzla


Bjöggan kveður í bili., Og ég lofa almennilegu bloggi fljótlega. :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.08.2008 23:20:42 / bjorg

Pétursson Open 2008

Já, ég er á lífi. :D Og já ég er búin að eiga alveg æðislegt sumar. Er nú þegar búin að vera í sumarfríi íþrjár vikur og á ennþá alveg heila viku eftir, sem er náttúrulega ekkert nema tær snilld. Ég ætla að nota hana vel. Fer á tvö námskeið. Byrja í fyrramálið á því að fara á söngnámskeið á vegum "Tónlistarhátíðar ungs fólks" en hún er haldin í Kópavoginum. Mjög spennandi. Ég tek jafnvel ´þátt á einhverjum hádegistónleikum, svo já ég spennt yfir þessu, Ágætis æfing fyrir 7. stigið sem ég stefni á í nóvember. :D

Í fríinu mínu er ég búin að gera ótrúlegustu hluti, já eða kannski ekki ;) Ég fór hringinn í kringum landið í annað skipti á ævinni, en það var alveg æðislega gaman. Við fórum suðurleiðina, gistum á tveimur farfuglaheimilum, sem var algjör snilld. Íslendingar eru alltof légir að nota þetta. Við vorum einu Íslendingarnir á staðnum, en þetta var bara mjög fínt. Vorum á Hvoli rétt hjá Kirkjubæjarklaustri, og svo á Höfn í Hornafirði. Fórum svo í Atlavík þar sem við vorum í tjaldi. Vá, það er æðislega fallegt þarna. Þarna er maður alveg við Lagarfljótið, sáum Orminum reyndar ekki bregða fyrir. Kannski næst ;) Keyrðum svo norður til Akureyrar en á leiðinni þangað var stoppað og svamlað aðeins í Jarðböðunum í Mývatnssveitinni. Mjög notalegt. Vorum þar í yndislegu veðri. Fórum svo norður til Akureyrar og kláruðum svo hringinn.

Annað sem ég hef afrekað í fríinu var að ég eignaðist yndislega lítinn frænda, hann Helga Hafstein. Hann er sonur Möggu og Jóa. En hann er alveg yndislegur. Bara fallegur strákur. 

En í dag var stór dagur hjá fjölskyldunni hans pabba. Hið mikla mót, Pétursson Open var haldið. En þetta er golfmót sem er haldið í fjórða skipti í ár. Þetta er sko alvöru mót, því það er fallegur BIKAR í verðlaun!! Ég, Erlingur og pabbi erum búin að vera mjög dugleg að æfa okkur í sumar og mættum galvösk til leiks á vellinum hjá Hótel Örk í morgun. Það var mikil spenna í loftinu og allirspenntir. Við ætluðum okkur að fá BIKARINN í bakkana. Og viti menn og dýr, haldiði ekki að hann elsku Erlingur minn, hafi bara unnið mótið og fengið bikarinn á Dvergabakkann. Bara snilld!! Og ekki nóg með það, heldur tryggði ég mér annað sæti. Svo að ég held að það sé óhætt að segja að við höfum staðið okkur með miklum sóma og prýði. Pabbi hrepti svo fjórða sætið. Svo að við stóðum okkur öll vel. Þess má geta að þátttakendur voru 10 talsins, svo að ná þessum árangri en bara mjög góður myndi ég halda. Þetta var bara gaman. Þetta sýndi það líka að það borgar sig að æfa sig, og já það ber árangur. Við ætlum að mæta þeim mun sterkari að ári og ætlum ekki að láta bikarinn frá okkur,

En jæja, best að láta þetta duga í bili. Stór dagur á morgun, söngnámskeið og heilsuátaksnámskeið. Svo ég bið að heilsa ykkur í bili.

Bjöggan kveður, með golfgleði í hjartanu.


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.06.2008 14:19:18 / bjorg

Brjálaðir ökumenn á Bíladögum

Ég og elskan mín lögðum upp í ferð síðastliðinn föstudag. Ferðinni var heitið norður til Akureyrar. Þar fara fram hinir árlegu "bíladagar" í kringum 17. júní.

Við urðum vissulega vör við töluvert mikla umferð norður, og sumum virtist liggja meira á en öðrum. Við létum okkur alveg duga að aka á 90 - 100 km hraða. Margoft tættu fram úr okkur bílar á töluverðri ferð. Merkilega oft voru þetta BMW og Audi bifreiðar. Kanski bara tilviljun. Við vorum nú ekki aö bölsótast mikið út í þetta. Sumir voru samt pínu tæpir á þessu. Jæja.... við erum komin í Skagafjörð og erum farin að nálgast Varmahlíð. Ég er við stýrið. Á undan okkur er fluttningabíll. Hann ekur frekar hægt þannig aö þegar gott færi gefst þá áhveðum við að taka frammúr fluttningabílnum. Þegar við erum komin við hlið fluttningabílsins birtist eins og djöfullinn sjálfur stór svartur Jeep Cheerokee jeppi sem er komin alveg í rassgatið á okkur. Hann blikkar ljósunum og virðist liggja mikið á að komast framúr mér.. Þegar við ætlum svo að fara til hægri fyrir framann fluttningabílinn þá er jeppinn búinn að stinga sér þangað og loka okkur úti á röngum vegahelmingi. Svona ökufant hef ég bara aldrei séð. Erlingur leit til hliðar og horfðist í augu við bílstjórann. Þetta var ungur strákur, sennilega í kringum tvítugt. Sem betur fer hélt hún ég kúlinu og náði að komast á réttann vegarhelming. Þetta var náttúrulega bara fáránlegt. Hver keyrir svona?. Það mátti nú ekki miklu muna aö þarna hefði orðið svakalegur þriggja bíla árekstur. Ég veit hver hefði "tapað" þar... Hyundai Accent, Jeep Cheerokee eða Benz fluttningabíll. Ég væri varla að skrifa þetta ef eitthvað hefði gerst. Það var eitthvað eða einhver sem var að passa okkur þarna. Ég held að hún amma mín, heitin hafi jafnvel haft eitthvað verið með hugann við okkur.

Við náðum nú að jafna okkur á þessu og héldum áfram. Og þegar við komum hinumeginn í Skagafjörðin blasti við okkur dýrðleg sýn. Lögreglan var búin að stoppa þrjótinn. Okkur grunar að bílstjóri fluttningabílsins hafi látið lögregluna vita. Ef svo er kunnum við honum okkar bestu þakkir. Hann hefur líka örugglega hægt þokkalega á sér þegar hann sá að fari þessa umferðarbrjálæðings. Bíllinn er frekar auðþekkjanlegur svartur, lækkaður með einhverju spoilerkittajúnki og tvöföldu pústi undan miðjum bílnum aftanverðum. Mér finnst að það eigi að birta myndir af umferðarbrjálæðingum sem þessum. Þeir eru hættulegir sjálfum sér svo og öðrum ökumönnum. Þessi piltur á allaveganna alls ekki að vera út í umferðini. Í besta falli ætti hann að fá leyfi til að vera á reiðhjóli!!

Ferðin fyrir norðn var með öllu mjög skemmtileg. Við fórum í golf, fórum á tónleika með Hvanndalsbræðrum og nutum þess í botn að vera í fríi.

Meira síðar
Bjöggan kveður í bili.

» 3 hafa sagt sína skoðun

25.05.2008 20:35:56 / bjorg

Afmæli og Utanlandsferðir

Jæja, Komiði sæl og blessuð! Nú er komið soldið góður tími síðan að ég var "alveg að verða 30 ára" hehe. Ég er orðin 30 fyrir rúmu tveim mánuðum síðan. Og vá, afmælisveislan var sko ekkert slor. Ég fékk ofurskvísurnar til að verða veislustjórar. En það voru þær systurnar Kristín og Gréta. Móðir mín og systir hennar. Þær voru alveg frábærar. Ýmis skemmtiatriði voru t.d kom Tindatríóið og söng fyrir mig. Krakkarnir í Söngskólanum sungu fyrir mig og já Veislustjórarnir tróðu upp með þvílíkt ógleymanlegt atriði. Ég fékk í afmælisgjöf málverk frá frændsystkinum mínum, hring frá elskunni minni já og svo ýmislegt annað gagnlegt. Frábært og eftirminnilegt kvöld.

Annað sem ég vildi segja frá, er að ég fór í tvær utanlandsferðir. Fyrri ferðina fór ég 30. apríl til stórborgarinnar New York. Ég fór með vinnufélögum mínum að skoða leikskóla já og til að hrista hópinn saman. Já, þetta var algjör snilldar ferð. Ég nenni samt ekki að vera að koma með ferðasögu núna, því ég ætlaði ekki að hafa þetta neitt ferðasögublog. Ég kom heim frá New York 6. maí og náði að vera heima í já tvo sólarhringja. því eldsnemma 8. maí fór ég aftur upp á flugvöll og var ferðinni heitið til Búdapest og svo til Vínarborgar með Kammerkór Hafnarfjarðar. Þar sungum við á tveimur tónleikum og í einni kaðólskri messu. Það var líka alveg dásamleg ferð og ætla ég ekki að koma með ferðasögu af því, allavega ekki strax en fyrir þá sem vilja kíkja á sögu frá þeirri ferð þá er hann Atli kórfélagi búinn að gera heljarinnar góða ferðasögu, en síðan hans er þessi: atli.askja.org . Það sem ég vil segja um Vínarborg er það að Vínarborg er líklegast fallegasta borg sem ég hef á ævi minni séð. Ég ætla að setja inn myndir fljótlega, þá sjáið þið kannski hvað ég á við. Kirkjurnar eru yndislegar, en eini gallinn við þær er að þær eru alveg skítkaldar að innan. En yndislega fallegar eins og áður sagði. Veðrið í Vín lék við okkur allan tímann Frábær ferð! Þið eruð öll yndisleg!

Næsta mál á dagskrá. Elskulega systir mín varð 16. ára núna 20. maí og vil ég óska henni innilega til hamingju með daginn. Einnig áttu amma Magga og Ingólfur litli frændi afmæli 23 maí. Föstudaginn 23. maí var haldin afmælisveisla til heyðurs ömmu. Lögin hennar voru sungin og borðaður góður matur og fjölskyldan spjallaði saman. Amma naut sín í botn og var æðislega ánægð með kvöldið. þetta var frábær hugsmynd að gera þetta fyrir hana.
Og þar sem ég er að tala um afmæli langar mig að koma því líka að þann 19. maí héldum við Erlingur upp á eins árs afmælið okkar. Við erum búin að vera saman í heilt ár.Okkur finnst það alveg ótrúlega flottur árángur hjá okkur og það sem æðislegast við þetta er það að við höfum aldrei verið eins ástfangin og verið erum núna. Þetta er bara yndislegt. Erlingur bauð mér út að borða á Argentínu steikhús í tilefni afmælisins okkar og áttum við þar yndislegt rómantískt kvöld. Maturinn var yndislegur og þjónustan frábær. Aldrei farið áður á svona fínan stað svo, já þetta var rosalega gaman. :D Takk ástin mín fyrir yndislegt kvöld. Elska þig alveg út af lífinu.

Jæja, best að hafa þetta ekki mikið lengra í bili. Nenni ekki að tjá mig um Eurovision keppnina. Held að við megum alveg vera sátt með okkar fólk. Þau stóðu sig vel og voru þjóðinni til sóma. Punktur.

Bjöggan kveður í bili

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.03.2008 01:00:02 / bjorg

30 Ár!!!

Jæja, nú styttist í það að ég verði 30 ára. Ég hef mikið verið að spá í því hvort að það sé eitthvað sem maður ætti að vera búinn að gera áður en maður verður þrítugur. Hvað segið þið..

Ég er komin með æðislegan kærasta
Ég er koin með íbúð
Ég er rosalega hamingjusöm í lífinu
Ég er búin að fara til útlanda, á samt eftir að fara aftur til útlanda, samt ekki áður en ég verð þrítug. Já og svo er ég búin að öllu því sem stendur á boðskortunum ykkar. ;)

Hvað segið þið,
Dettur ykkur eitthvað í hug sem er möst að gera fyrir þrítugt. Ég væri alveg til í að fara í fallhlífarstökk, en ég held einhvernveginn að það sé ekki möguleiki fyrir þrítugs aldurinn.

Svo er spurning líka, Þið sem eruð komin yfir þrítugt. Var þetta ekki soldið erfitt að vakna og bara VÁ.!!! Ég er ekki lengur tuttugu og eitthvað. !!!!
Fyrir mér er þetta ekkert svakalegt áhyggjumál. Mér finnst þetta pínu gaman. En samt, verður skrítið að segja ekki "Já ég er tugguguogníu" mér finnst ég samt í rauninni bara vera 25 ennþá.

En hvað segið þið... Hvað á ég að gera af mér áður en ég verð þrítug??


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.02.2008 20:53:23 / bjorg

KONUDAGUR og EUROVISON

Já, SÆÆÆLLL!!! Eigum við að ræða þetta eitthvað??

Eins og alþjóð veit þá var konudagur síðasta sunnudag og auðvitað lét minn maður ekki sitt eftir liggja. Þessi elska fór í bakarí um morguninn, kom heim með bakkelsi og rós. Awww.. Bara rómantískur. Við notuðum daginn vel. Þetta var náttúrulega bara yndislega fallegur dagur. Það var hvít jörð, sólskin og logn. Alveg yndislegt veður. Við turtildúfurnar ákváðum svo í tilefni dagsins að skella okkur á Þingvelli, sem við gerðum. Það var alveg yndislegt. Fengum okkur göngutúr og kíktum aðeins í bústaðinn, þar sem við spiluðum Yatzy og Rummicup. Þegar við komum heim hófst svo eldamennskan. Hann eldaði lambakjöt og meððí. Held að þetta hafi verið yndislegasti konudagur ever.

Á laugardagskvöldið var svo forkeppni Eurovision haldin hérna heima. Eurobandið fór með sigur úr bítum eins og flestir vita líklegast, þar sem að allir fylgjast yfirleitt með þessu sjónvarpsefni. Ég var bara nokkuð sátt við úrslitin. Ég held að þau eigi eftir að vera landi okkar og þjóð til sóma.

Langar að óska Kæju til hamingju með litlu prinsessuna sem fæddir 11.02. 08. Hún er bara krútt. Já og svo á hún 29 ára afmæli í dag. Til hamingju elsku vinkona.

Jæja, hef þetta ekki lengra í bili.

Bjöggan kveður


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.01.2008 19:26:09 / bjorg

Afmælisbörn og lítið gæludýr

Jæja, góðan daginn, daginn daginn!!!

Hvað segir fólkið þarna úti? Af mér er bara gott að frétta. Ég nýt lífsins eins og fyrridaginn og já það er æði. Ég fór fyrir ca þrem vikum að ég held með Þórdísi að fá mér hamstur. Við völdum ofboðslega fallega kjellingu. :D Hún er svona karamellubrún og hvít með rauð augu. Ofsalega falleg. Hún heitir Kleina og er örugglega að æfa sig fyrir maraþonhlaup í hamstrahjólahlaupi. :D Hún hjólar stundum eins og hún eigi lífið að leysa. Hún er algjört æði. Okkur Erlingi er farið að þykja voðalega vænt um hana. Hún er bara krútt.

Nú, það eru tvö afmælisbörn dagsins í dag. Í fyrsta lagi þá er hann Óskar frændi minn 19 ára í dag. Til hamingju frændi. Góða skemmtun í kvöld. :D Svo er hún Kristín "litla" 8 ára í dag. Til hamingju með það elsku frænka. Það verður bara gaman að fara í afmæli á morgun til hennar :D

jæja, ég hef þetta ekki mikið lengra í bili. Ætla að fara að sinna kjellinum. ;)

Bjöggan kveður..


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.01.2008 18:45:08 / bjorg

Annáll 2007. Annar hluti.

Jæja, halló halló.

Þá er best að halda áfram þar sem frá var horfið

Júlí: Í júlí var ég meira og minna bara fyrir norðan og Erlingur í bænum og við eitthvað að dúllast bara. Fórum svo í sumarfrí í lok mánaðarins komum nánar að því í ágúst. Reyndar fór ég að vísu í eitt skammtilegasta afmælis ársins í júlí. Hann Helgi Rafn hélt upp á afmællið sitt og allir komu með einhverja leiki í afmælið. Það var algjör snilld. Afmæli sem gleymist seint. Í júlí gerðist það líka að ég var stöðvuð fyrir ofhraðan akstur rétt hjá Staðarskála og fékk vægt sjokk við það. Var stöðvuð á 106 km hraða þar sem hámarkshraðinn var 90 km og ég fékk sekt upp á 30. þús, borgaði 23500 af því að ég borgaði fyrir einhvern ákveðinn tíma. En shit.. þessar sektir eru fáránlega dýrar. Eigum við að ræða það eitthvað?? Já og ekki má gleyma því að ástin blómstraði...

Ágúst: Í ágúst fór ég í yndislegt sumarfrí. Við fórum í smá ferð í Ásbyrgi og skoðuðum svolítið norðurlandið. Mjög skemmtilegt verð ég að segja. Líklega með betri sumarfríum. Svo var maður að vinna líka og njóta síðasta mánaðar sumarsins. Einnig fórum við í afmæli hjá Ólöfu og Margréti á Menningarnótt og vorum í bænum þá nóttina. Horfðum á flugeldana og vorum svo í afmæli og höfðum gaman. Já og ástin blómstrar bara meira...

September: Skólinn byrjaði aftur eftir gott sumarfrí. Elskan mín átti stórafmæli og við héldum það hérna heima hjá mér, þá heima hjér mér ;) Afmælið var mjög skemmtilegt og heppnaðist með eindæmum vel. Annars rann september bara ljúft. Reyndar var mikið í gangi í skólanum að undirbúa tónleika sem voru svo í nóvember og 6. stigs próf. Meira um það í nóvember. Einnig var allt á fullu við að undirbúa Skuggablóm. Svo má ekki gleyma því að ástin heldur áfram að blómstra

Október: Ástin hélt áfram að blómstra í október. þarf að segja eitthvað meira?... Nýja óperan Skuggablóm var frumsýnd í Salnum. Óperan var eftir góðan vin minn Helga Rafn Ingvarsson. Og var frábært að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni :D Þetta var bara snilld.Í október var líka mjög stór dagur í lífi mínu. Ég losnaði við spangirnar í efri góm. Þvílíkur munur, en í staðinn fékk ég góm sem ég þarf að vera með eitthvað áfram. Veit ekki alveg hvenær ég má hætt að nota hann. En að vera laus við spangir í efri góm, Það var mikil snilld. MIkill sigur út af fyrir sig. :D Já og auðvitað hélt ástin áfram að blómstra.

Nóvember: Það sem stendur upp úr í nóvembermánuði er að sjálfsögðu tvennt. Fyrst vil ég nefna það að elskan mín flutti inn´til mín og við hófum sambúð. Algjör snilld. ég söng á tónleikum í SR og gekk það rosalega vel þrátt fyrir mikla og leiðinlega flensu sem ég náði mér í. Tengdó kom meira að segja að hlusta og voru yfir sig hrifin af tengdadótturinni. En ekki hvað? ;) Bara gaman. Að lokum tók ég 6. stigs söngprófið og gekk það bara nokkuð vel. Fékk 8.1 úr því og má vera nokkuð sátt við það. Verst bara að tónheyrnin var að draga mig soldið niður, en æi.. þessi tónheyrn getur bara verið asskoti erfið. Þið þekkið þetta söngfuglar. :D Þetta er það helsta sem stendur upp úr nóvember Já og ekki má gleyma því að ástin hélt áfram að blómstra. Í nóvember héldum við turtildúfurnar líka upp á hálfs árs afmælið okkar saman. Algjör snilld. :D

Desember: Undirbúningur jólanna stóð hvað hæst í desember. Við turtildúfurnar komumst að því að við erum bæði algjör jólabörn. Við bökuðum smákökur, bjuggum til jólaland. Keyptum jólatré sem já er eiginlega smá saga í kringum. Við vorum mikið búin að vera að leita að rétta trénu, ætluðum að kaupa gerfitré. Við drifum í þessu 21. des. Keyptum þetta fína jólatré (eða það héldum við;) Við ætluðum bara að setja jólatréð upp á laugardeginum en upp úr kassanum kom SVART jólatré!!!! Ég rak upp stór augu og sagði: Þetta er SVART!!! og Erlingur bara horfði líka og við áttum ekki aukatekið orð. Ég hringdi í Blómaval og talaði við einhverja konu heillengi og hún var eitthvað efins um að hvort að það væri eitthvað grænt eftir, svo náði ég loksins sambandi við gaur í Húsasmiðjunni og hann átti eitt grænt tré í sömu stærð og jú, við brunuðum í skútuvoginn og skiptum á trjám. Saga þessi er samt ekki enn á enda. Við vorum alsæl með fallega græna tréð okkar nema hvað að botn kassans opnaðist þegar við vorum rétt komin inn í stigaganginn okkar. og tréð datt á gólfið. Okkur fannst þetta frekar skondið. Tréð var svo sett upp í stofunni okkar og fallega skreytt með skrauti sem við höfðum keypt og líka jólaskraut sem amma og afi gáfu okkur. Takk fyrir okkur með það.

Nú, einni og hálfri viku fyrir jól var okkur boðið til Köben með tengdó. Það var náttúrulega bara snilld, fyrir utan eitt lítið smáatriði.. BRJÁLAÐ VEÐUR!!!!!  sem hamlaði öllu flugi bæði innanlands og UTANLANDS!!1 Sem gerði það að verkum að við komumst ekki fyrr en sólahring á eftir áætlun. Og gistum bara eina nótt í köben. En þetta værði æðislegt. Við fórum í tívolí, á Strikið, í Fisketorfet og út að borða á nokkuð fínum stöðum verð ég að segja. Þetta var bara algjör snilldar helgi. Langar mig að senda Önnu tengdó stórt knús með kærri þökk fyrir yndislega helgi!!

Auðvitað héldum við svo upp á jólin saman. Aðfangadagur heima hjá pabba. Jóladagur heima hjá mömmu, hangikjöt og meððví og spilaður veiðimaður frameftir með fiskaspilum. Ferlega skemmtilegt. Salomon... kom mjög sterkur inn. ;) Salomon Gustavson. Og á annan í jólum fórum svo svo í tvö jólaboð, fyrst í grindavík og svo hjá Pétri frænda. Svo kallað spilakvöld. Skemmtilegur dagur. Á gamlárskvöld vorum við svo í mat hjá mágkonu minni henni Fjólu, komum svo hingað í kotið okkar og horfðum á Skaupið og fögnuðum nýju ári tvö saman á svölunum okkar með útsýni yfir alla borgina. Algjör snilld, þrátt fyrir mikið rok. Yndislegt.

En jæja, held að desember mánuður sé orðinn lengstur hjá mér. :D Læt þetta duga í bili. Ætla reyna að vera duglegri að blogga á þessu ári. Lofa samt ekki bloggi daglega, en kannski vikulega. Það er allavega stefnan. Hafið það rosalega gott. Bið að heilsa ykkur í bili..

Bjöggan kveður... og enn blómstrar ástin...

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.01.2008 17:40:54 / bjorg

Gleðilegt nýtt ár!!!

Komiði sæl.

Ég vil óska ykkur öllum gleðilegs nýs árs og takk fyrir gömlu árin. Það hefur ýmislegt gerst á árinu sem er liðið. Árið 2007 hefur verið eitt yndislegasta ár sem ég man eftir. Mig langar að fara yfir það sem bar við hvað hæst á árinu sem leið..

Janúar: Nemendaópera Söngskólans var í fullum gangi. Komst lítið annað að, en æfingar í minni fyrstu þátttöku í nemendaóperu Söngskólans. Frábærlega skemmtilegt líka. Svo byrjaði ég í nýrri vinnu. Nýr leikskóli í Norðlingaholti sem heitir í dag Rauðhóll. Ég bjó til söngbók fyrir leikskólann og tók þátt í því að byggja upp nýjan leikskóla. Fyrstu börnin komu svo 1. mars. 

Febrúar: 1. Algjör draumur sýndur þrisvar sinnum í IÐNÓ fyrir fullu húsi. Það var algjör  draumur.                                                                                                                         2. Ég hitti Erling í fyrsta skipti og það átti eftir að breyta lífi mínu.                                           3. Ég flutti inn í mína fyrstu íbúð í Breiðholtinu, það var frábært. Æðislegt að standa á eigin fótum. Eitthvað sem allir verða að gera einhverntíma á lífsleiðinni. :D Algjört möst.                   4. Fór á djamm ársins með Hildi eftir að hafa verið að mála íbúðina mína allan daginn. Vá, þvílíkt djamm.  Ég söng líka á tónleikum í Söngskólanum lögin Nótt og Varen og vinur minn Hjörleifur Valson spilaði með mér á fiðlu. Það var æðislegt! ég reyndar lagðist í lungnabólgu að tónleikum loknum. Sem var ekki eins æðislegt.       

Mars: 1. Ég varð 29 ára                                                                                                  2. Ég fór á tvær árshátíðir, Önnur þeirra var haldið á Hótel Kea á Akureyri, Það var Árshátíð Norðlenska. Fór þangað með Erlingi. Það var mjög spes. Steinn Ármann skemmti og var það mjög skemmtilegt. Svo var líka hin árlega Árshátíð Söngskólans í Reykjavík. Það var algjör snilld. Mikið stuð. Alltaf mikið stuð á þeirri árshátíð. Ég hélt áfram að deita.. Bara snilld.

Apríl: Fór í tvær skemmtilegar roadtripp ferðir með Gulla til Akureyrar og var þar meðal annars fyrir páskana. Takk Gulli. bara snilld að ferðast með þér. Kynntist Hvanndalsbræðrum. Vissi ekkert á hverju ég ætti von á. En já þvílík snilld.Passaði strákana hennar Kæju laugardaginn fyrir páskana. Það var bara gaman. Eyddi svo páskadegi hjá þeim. þau eru hvert öðru yndislegra þarna í Hvalfjarðarsveitinni. Og nú fer fimmti fjölskyldumeðlimurinn að fara að koma eftir ca mánuð. :D Get eki beðið.  Í apríl var ég líka bara í einhverri sæluvími eins og eiginlega allt árið.

Maí: Ég eignaðist KÆARASTA!! Við Erlingur ákváðum að þetta deiting dæmi væri búið að ganga það vel að við ákváðum að gera þetta formlegt. Byrjuðum saman 19. maí. Yndislegur mánuður. Fór að sjá söngleikinn Gretti í Borgarleikhúsinu með elskunni minni. Það var mjög skemmtilegt. Í maí voru líka kosningar og Eurouvision sama kvöldið. Ég kaus auðvitað og horfði á Erík syngja. Þetta var allt voða merkilegt en mér finnst samt merkilegast að ég hafi eignast yndislegasta kærasta í heimi. Gaman líka að lesa í gegnum blogin sem ég skrifaði í maí. Var að lesa þau yfir til að skoða hvað hafði gerst í maí og vá. Þvílík rómantík í minni þennan mánuð. Eigum við að ræða það eitthvað???

Júní: Ég var fyrir norðan á 17. júní hjá elskunni minni og á bíladögum sem voru þar á þeim tíma. það var nokkuð spes, en gaman líka. Bjarki mágur Erlings var í öðru sæti í Burnout keppninni. Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur í Grindavík og einnig var haldið frænkudjamm þá helgina. Ég fór að sjá Laddi Sextugur með ástinni minni og það var algjör snilld. Hvenær fær þessi maður fálkaorðuna? Ég bara spyr. Ég fór í viku sumarfrí norður til Akureyrar og var það alveg frábært.

Jæja, þá hef ég farið yfir hálft árið 2007. Ég tek seinni hluta ársins fyrir fljótlega. Framundan er þegar ég var tekin af löggunni, meðal annars já og ástin að sjálfsögðu og sitt lítið að hverju verður tekið til.

Gleðilegt ár allir saman og takk fyrir liðin ár.

Bestu kveðjur, Bjöggan.. sem er enn ástfangin út úr eyrum... ;)

             


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.12.2007 13:13:11 / bjorg

Gleðileg jólin!!

Komiði sæl gott fólk. Og já ég bið ykkur að afsaka hvað ég skrifa seint. Þetta náttúrulega er ekki hægt. Það er að koma nýtt ár og ég er ekkert jólablog búin að skrifa en jæja. Best að drífa í þessu.

Það eru nokkur atriði sem mig langar að segja frá svona rétt áður en það kemur nýtt ár. Við Erlingur fórum á jólahlaðborða á Hótel Örk. Það var algjör snilld. Jóhannes eftirherma var veislustjóri og gerði hann það af mikilli prýði. Hann er algjör snillingur, Tók Forsetann okkar og Guðna Ágústsson ásamt annara af mikilli snilli. Maturinn var líka guðdómlegur. Svo var ball á eftir en við vorum svo stödd að það var varla hægt að dansa En þetta var algjört æði. Frábært.

Annað sem mig langar að segja frá er að við fórum í stutta fer til kaupmannahafnar með tengdó. Þau buðu okkur Algjör snilld. Við fórum í tívolí, bjuggum til bangsa, fórum á Strikið og í Fisketorfen. Fengum okkur svo að borða á Herefoord. Sem var algjör snilld.

Erlingur er fluttur inn til mín fyrir þá sem ekki vitað það. og var hjá okkur um jólin. Nú, svo er planið að við förum norður um helgina og verðurm þar um áramótin. Það verður örugglega gaman. Annars er nú smá plan sko áður en við förum norður. Annað kvöld verður hið árlega frænkudjamm haldið. Í þetta skipti er það Drottningarþema. Og já er mikil spenna í frænkunum fyrir kvöldinu. Þetta verður haldið annað kvöld. Ég er komin með ágætishugmynd um drottningu. ;) Þetta verður stuð. Síðustu frænkudjömm hafa verið mjög skemmtileg og er því mikill epenningur yfir þessu djammi.

Jæja, læt þetta duga í bili og já ég reyni að hafa svona rosalega langt á milli blogga næst. Hafið það gott yfir hátíðirnar.

Jólakveðja. Björg


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 21:58:49 / bjorg

Eigum við að ræða það eitthvað???

Hellú hellú.

það er naumast að maður erbúinn að vera lélegur við að blogga undanfarið. Hvað er eiginlega málið með það? Jú jú, mín er búin að vera ansi upptekin síðustu vikur. Skuggablóm kláraðist og heppnaðist það allt saman mjög vel. Gaman að taka þátt í þessu. Það er hægt að skoða myndir frá undirbúningi frumsýningarinnar á nýju facebook síðunni minni.  Annars er búið að vera margt annað í gangi.Síðustu tvær helgar hafa verið alveg yndislegar.. eða já á ég aðsegja síðustu sex mánuðir. Í gær var nefnilega hálft ár seíðan við elskan mín byrjuðum svona formlega saman. Híhíhí.. Rosalega er tíminn fljótur að líða. Þetta er náttúrulega bara búinn að vera æðislegur tími. Eigum við að ræða það eitthvað..? 

Annars er búið að vera nóg að gera í skólanum líka. Ég tók 6. stigs prófið og náði því með 8.1. Já já, þetta er svosem ágætis einkunn en við vitum í skólanum að við stefnum alltaf á 9. Svo að það verður bara 9 í sjöunda stigi. :D Já, sem ég tek að öllum líkindum í maí á næsta ári. Annars fékk ég mjög góða umsögn á prófinun og er bara mjög ánægð með hana. Signý var eiginlega hissa á því að ég væri ekki að fá hærra fyrir lögin. SVo getur þessi tónheyrn verið algjör martröð.. Eigum viðað ræða þaðeitthvað??

Annars er ég líka búin að vera að stunda framhaldstónleika hjá vinum mínum í skólanum núna síðustu daga. Og já, ég get alveg sagt að þetta hafa verið frábærir tónleikar. Ég hef alveg haft hugann opinn og hugsað hvaða lög mig langi til að syngja á mínum tónleikum sem verða þá að öllum líkindum í apríl á næsta ári. Þetta er bara allt saman rosalega spennandi og ég er rosalega spennt.

 Jæja, best að hafa þetta ekki lengra í bili. Það er frábær tími framundan.. Segi ykkur frá því seinna..

Bjöggan kveður í bili.. 


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 19:31:37 / bjorg

Brosið þitt

Jæja, það var víst verið að óska eftir að ég færi að skrifa fleiri ljóð. Ég hrissti eitt fram úr hendinni bara núna rétt áðan.

Gaman væri að fá viðbrögð frá fólki :D

 

Brosið þitt 

Það var í morgun,
ég lá vakandi í rúminu mínu og aðeins eitt
aðeins eitt komst fyrir í huga mér.
Það varst þú sem hafðir komið inn í nóttina til mín.
Þú tókst í höndina á mér og brostir.
Þú brostir til mín og dróst mig til þín
Þú brostir til mín, kysstir mig og fórst svo.

Það var í dag,
Ég horfði út um gluggann og beið
ég beið þess að þú kæmir aftur.
Rigningin barði á rúðuna
og ekkert gerðist.
Ég sá andlit þitt á rúðunni.
Þú vildir komast inn
Brosið fór
þú fórst

Það var í kvöld
Ég lá sofandi í sófanum
Þú komst til mín og kysstir mig á ennið.
þú komst aftur.
Þú komst aftur til mín og brostir.
Þú brostir til mín
Ég brosti til þín
Sálir okkar bráðnuðu og urðu eitt

 

Að sjálfsögðu er þetta tileinkað elskunni minni honum Erlingi. Takk fyrir að vera til ástin mín. Elska þig.

Bjöggan kveður..

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 18:37:09 / bjorg

Skuggablóm

Ný Íslensk ópera, Skuggablóm eftir Helga Rafn Ingvarsson verður frumsýnd í Salnum í kópavogi miðvikudagskvöldið kl 20. Síðari sýning verður svo á fimmtudagskvöldið kl 20. Það er ókeypis aðgangur

Þetta er flott verk og er tæpur klukkutími að lengd og það er ekkert hlé. 

Fyrir þá sem ekki vita er það Nemendaópera Söngskólans í Reykjavík sem er búin að vera að æfa þetta síðustu 6 vikur. Ég er að taka þátt í þessu og þetta hefur verið rosalega skemmtilegt og spennandi allt saman.

 

Látið sjá ykkur..

Bjöggan kveður.. 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 22:16:47 / bjorg

Litla systir

Þegar ég var lítil... þá dreymdi mig alltaf um að eignast lítið sistkyni, hvort sem það yrði strákur eða stelpa. í heil fjórtán ár suðaði ég í foreldrum mínum um að gefa mér sistkyni sem mér var sagt að það væri ekki hægt vegna þess að það væri ekki fræðilegur möguleiki fyrir móður mína að eignast annað barn. Eða það hafði læknir sagt við hana. En einn fallegan haustdag í octóber 1991 tilkynnti mamma mér það mér hefði orðið að ósk minni. Ég get ekki lýst hamingjunni sem braust um í mér. Hún var ólýsanleg. Við ákváðum að fá að vita kynið, það kæmi í umslagi, á jólunum. Við myndum opna það með hinum jólakortunum. Við gerðum það og á aðfangadag opnuðum við lítið sætt umslag. Inni í umslaginu var bleikt blað sem á stóð. "Það er stúlka" Gleðin streymdi um mig. Ég er að fara að eignast litla systur hugsaði ég með mér og það var ein yndislegasta tilfinning sem ég hafði fundið á ævinni.

 20. maí 1992 kom svo lítil prinsessa í heiminn. Ég var stolltasta stóra systir í heimi og er enn. Ég passaði hana mikið þegar hún var lítil og hefur hún verið pínulítið eins og mitt eigið barn. Þannig tilfinningu ber ég til hennar. Þetta er auðvitað hún Þórdís mín sem ég hélt á undir skírn.  Í dag er hún 15 ára og hún syngur og leikur og er frábær í því. Hún er snillingurinn minn og stolltið mitt. O Í gær var hún að fá aðalhlutverk í sínum grunnskóla í Skrekk. Algjör snilld. Og ég veit að hún á eftir að standa sig eins og hetja eins og alltaf. 

Ég veit að hún á eftir að halda svona áfram og ég á eftir að halda áfram að vera stolltasta systir í heimi.

Bjöggan kveður í bili


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Söngskólakrakkar
Klukkan