Gleðilegt nýtt
ár!!!
Komiði sæl og
blessuð.
Þá er komið að tilraun tvö að
gera nýársblogg.
Ég var búin að gera heiðarlega tilraun hérna
rétt eftir áramót, en viti menn, það eyðilagðist þegar ég gerði
heiðarlega tilraun til þess að segja mynd inn í bloggið. Hmmm.. Ég
virðist ekki kunna að setja mynd í bloggið mitt. Virðist allavega
ekki ganga. En allavega. Ætlaði ekki að gera það að aðal málinu í
þessu bloggi. 
Annars langar mig að fara yfir
árið 2006 svona rétt aðeins...
Janúar:
Hmmm.. ég fangaði nýju ári..
man eiginlega ekki
mikið Fór að sjá Töfraflautuna sem var sett upp hjá
Óperudeild Söngskólans. Var í skólanum. Og já naut þess að vera
til.
Febrúar:
Það hefur verið svo mikið að gera hjá mér í Febrúar
að ég hef ekkert bloggað um það.. hehe..man semsagt ekkert hvað ég
gerði sérstakt í febrúar. Held reyndar að Motzart tónleikarnir hjá
Kammerkórnum hafi verið í febrúar. Þannig að það var mikið æft í
kringum þá tónleika man ég.
Mars:
Árshátíð Söngskólans var haldin. Það gekk
mjög vel og var alveg einstaklega skemmtilegt. Við í NFSR
vorum búin að vinna fram á nótt að undirbúa árshátíðina sem
að fór á hinn besta veg. Æðislegt kvöld. Fór til USA í fyrsta
skipti í heimsókn til Erlu og Ólafar. Það var algjör
snilldarferð. Hægt að lesa næstum allt um hana í blogum sem
ég bloggaði í mars.
En í einni setningu, þá fór ég í
mollið, outletmollið, datt í það að amerískum sið,
söng í
karókí, borðaði góðan mat, fór í spænskutíma og
mannfræðitíma..(snilld btw), tók myndir af gulum skólabílum
og háhýsum, hélt upp á afmælið mitt og skemmti mér konunglega

Apríl:
Þórdís var fermd, mikill undirbúningur í kringum
það.
Hún tekin í fullorðinna manna tölu. Veislan gekk mjög vel
og eksmmtilegur dagur.
Svo voru auðvitað Páskar í apríl, sem
þýðir bara frí og súkkulaði
Alltaf gaman á páskunum
Hlakka
til páskanna í ár.. 
Maí:
Vorið kom.. Besta vor í manna minnum...
Jejj... Grillkvöld Söngskólans var haldið. Ég tók 5. stigs
prófið í Söngskólanum og náði því með prýði. Tók 6. stig í
hljómfræði.. Allt á réttri leið á þessarri braut. Í maí fór
Kammerkórinn í Óvissuferð. Vá!! Algjör snilld. Ferð sem að
skyldi eftir sig mikið af minningum. Þar var farið í ratleik
á Þingvöllum, grillað í bústaðnum hans Helga og endað í
Steggjapartýi hjá Gumma.
Snilld. Já og Silvía
Nótt keppti víst fyrir okkar hönd í Eurovision og það var
púað á hana þegar hún kom á sviðið. Mikil upplifun að
fylgjast með henni. Í maí voru líka vortónleikar
Kammerkórsins, en þeir heppnuðust mjög vel og mikil stemmning
í kringum þá.
Svo fór ég á tónleika með Garðari Thor Cortes í laugardalshöllinni
og það var rosalega mikil snilld. Eftirminnilegt kvöld.
Júní:
Óvissuferð Múlaborgar stendur þar hæst.
Snilldardagur. Fórum í tveggja hæða strætó, lærðum magadans
og fórum út að borða. Mjög skemmtilegur dagur.
Fór á
bryggjuball í grindó með Pöpunum.
Geðveikt gaman, Sjóarinn
síkáti í grindó. Snilld. Það er náttúrulega alltaf allt
skemmtilegt sem er í grindavík
.. Hélt upp á 17. júní með
stæl. Fór á Litlu hryllingsbúðina, Góður
mánuður.
Þetta er orðið svo langt að ég
ætla að gera hlé á máli mínu eins og málin standa.
Held áfram
með næstu mánuði næstu daga, þarf víst að fara að halla mér.
Óperudeildin í fyrramálið
Jejj..
Já og ef ég er að gleyma einhverju þá minnið þið mig á það
Hafið það rosalega gott þangað
til næst.. Og bestu kveðjur til USA og Ítalíu.. þar sem Ólöf og
Maggi eru á skíðum já og til Hollywood, til Möggu. Miss ya
girl.
Bestu kveðjur,
Bjögga