Heimasíða Bjöggu beib

Velkomin(n) á Bjöggu síðuna ;)

10.09.2007 22:02:11 / bjorg

Smá ljóð

Smá viðbót. Var aðeins að semja áðan og ákvað að láta þetta bara flakka á síðuna mína. Bara gaman að prófa sig áfram í þessu og sjá hvað gerist þegar maður leyfir sig að prófa sig aðeins áfram. Var voðalega dugleg þegar ég var yngri, en svo hef ég ekkert gert lengi. Svo aldrei að vita nema maður semji meira síðar.

 Vetrarást

Hann birtist eins og elding úr heiðskýru lofti.
Hann bara var þarna,
horfði á stjörnurnar og brosti
Hann var að hugsa um hana,
hana sem hafði breytt lífi sínu
Hvaðan kom hún?
Hver var hún?

Hún fylgdist með honum úr fjarlægð.
Hvað var hann að hugsa?
Hafði hann verið að hugsa um hana.
Hún vonaði það.
Hún horfði á stjörnurnar og brosti.
Hún var að hugsa um hann,
hann sem hafði breytt lífi sínu
Hvaðan kom hann?
Hver var hann?

Hann og hún mættust í hugsun,
hugsun sem aðeins þau áttu.
Hann og hún voru ein í heiminum
Hann tók í hönd hennar og leiddi hana,
hann leiddi hana í burtu
hann sagði ekkert
hún sagði ekkert
Hann leiddi hana á vit stjarnanna


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 16:13:47 / bjorg

Afmælæisbörn...

Hellú hellú..

Hvað  segir fólkið gott í dag? Ég er bara hin hressasta. Mig langar að óska elskunni minni innilega til hamingju með daginn. :D Hann er 35 ára í dag þessi elska. Við héldum upp á afmælið hans síðasta laugardagskvöld hérna heima hjá mér og kom slatti af fólki. Þarna voru fjöldkyldur okkar og vinir saman komnir.. Þetta var algjört snilldarkvöld. Takk fyrir komuna þið sem kíktuð við. Gaman að fá ykkur í partý. Ég gaf honum í afmælisgjöf fallegt armband með nafninu hans á. Þetta var karlmannsarmband, svo það sá á hreinu.. Og já ekki nálægt þér að vera eins og armbandið sem Joey gaf Chandler.. "We're braclet buddies" "That's what they'll call us" heheh.. Snilldar þættir.. Þetta var svona silfur keðja, mjög töff. og hann mjög ánægður með hana. Að sjálfsögðu bakaði ég hina frægu skúffuköku sem gengið hefur í ættir frá langömmu Kristínu. Heppnaðist hún með eindæmum vel og hlakka ég til að baka aftur skúffuköku sem hún systir mín á víst inni hjá mér. 

Jæja, ég hef þetta ekki lengra í bili, en mig langar að óska nokkrum einstaklingum til komandi afmæli eða þeir sem eru nýbúnir að eiga afmæli.  Úr kórnum eru það Hildur, Oddgeir og Atli. Öll í September. Til hamingju með daginn þið öll..

Fjölskyldan: Já, Erla, Ólöf, Margrét og Sighvatur. Þess má til gamans geta að Ólöf, Margrét og Sighvatur eiga afmæli 18. september. Gaman að því.

Já, svo átti hann Bjarni afmæli í september líka. Til hamingju með daginn þið öll, 

Mig langar að enda þetta á RISAKNÚSI til elskunnar minnar í tilefni dagsins.. *KNÚSSSSSSSSS*

Bjöggan kveður í bili.. 


» 2 hafa sagt sína skoðun


Söngskólakrakkar
Klukkan